Traust lífeyristrygging
Greiðslur í lífeyrissjóð skapa rétt til ellilífeyris við lok starfsævi og örorkulífeyris skerðist starfsgeta vegna veikinda eða slyss. Makar og börn geta átt rétt á greiðslum við fráfall sjóðfélaga.

Ellilífeyrir
Hefja má töku ellilífeyris milli 60 og 80 ára aldurs. Lífeyririnn er óháður öðrum tekjum og greiddur mánaðarlega til æviloka í samræmi við réttindi hvers og eins.
Örorkulífeyrir
Við skerta starfsgetu og tekjuskerðingu vegna örorku getur sjóðfélagi átt rétt á endurhæfingar- eða örorkulífeyri.
Makalífeyrir
Ef sjóðfélagi fellur frá á eftirlifandi maki rétt til lífeyris í a.m.k. fimm ár. Réttindin byggjast á hjúskap með sjóðfélaga eða óvígðri sambúð sem staðið hefur í a.m.k. tvö ár fyrir andlátið.
Barnalífeyrir
Ef sjóðfélagi fellur frá eða verður óvinnufær geta börn hans sem eru innan við 18 ára, átt rétt á barnalífeyri.
Skattlagning lífeyrisgreiðslna
Tilkynna þarf í hvaða skattþrepi tekjuskattsgreiðslur eiga að vera ef heildartekjur lífeyrisþega, frá sjóðnum og öðrum ef við á, eru samtals meira en 498.122 kr. á mánuði. Sjóðurinn stendur skil á staðgreiðslu skatta en hver og einn þarf að láta vita hve hátt hlutfall af skattkorti hann vill nýta hjá sjóðnum.
Tilkynning um persónuafslátt og skattþrep (pdf).
Árið 2026 er persónuafsláttur 72.492 kr/mán og skattleysismörk lífeyrisþega þá 230.206 kr. á mánuði.
Lífeyrisþegar geta nýtt allt að 100% af ónýttu skattkorti maka til skattalækkunar. Við fráfall maka geta lífeyrisþegar nýtt skattkort makans í 9 mánuði frá og með andlátsmánuði.
- Af fjárhæð yfir 1.398.450 kr/mán
- 46,29%