Eignir og fjárfestingar
Gildi er leiðandi fjárfestir á íslenskum markaði og leggur áherslu á fagleg vinnubrögð og víðtæka upplýsingagjöf. Sjóðurinn lítur meðal annars til umhverfismála, félagslegra málefna og stjórnarhátta í fjárfestingum.

Ábyrgar fjárfestingar
Stefna Gildis um sjálfbærar og ábyrgar fjárfestingar er leiðarljós sjóðsins sem eiganda í þeim félögum sem hann fjárfestir í, á sviði umhverfismála og félagslegra málefna.
Hluthafastefna
Hluthafastefna Gildis hefur það að markmiði að setja fram áherslur sjóðsins varðandi virka þátttöku hans sem hluthafa í þeim félögum sem stefnan tekur til.
Stjórnarseta fyrir Gildi
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs leitar að einstaklingum sem áhuga hafa á stjórnarsetu í hlutafélögum með stuðningi sjóðsins. Félögin geta verið skráð í Kauphöll eða óskráð hlutafélög.
Fjárfestingarstefna
Fjárfestingarstefna Gildis er gerð með það að markmiði að ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af hagfelldustu kjörum sem í boði eru á hverjum tíma með tilliti til áhættu.
Ársskýrslur Gildis
Í ársskýrslum Gildis eru veittar ítarlegar upplýsingar um stöðu, ávöxtun og starfsemi sjóðsins. Skýrslurnar eru gefnar út árlega í aðdraganda ársfundar.

Skýrsla um framkvæmd hluthafastefnu

Gildi-lífeyrissjóður birtir hér ítarlega samantekt um framkvæmd hluthafastefnu sjóðsins og hvernig Gildi beitir sér sem hluthafi í skráðum félögum.
Eignasamsetning
Eignir, ávöxtun og fjárfestingarstefna

Eignasafni Gildis er stýrt í samræmi við fjárfestingarstefnu sjóðsins hverju sinni, með það að markmiði að ná fram ákjósanlegri áhættudreifingu og ávöxtun til langs tíma. Áherslur Gildis sem leiðandi fjárfestis á íslenskum markaði eru meðal annars aðgengilegar í hluthafastefnu sjóðsins og stefnu um ábyrgar fjárfestingar.
Eignasafn samtryggingardeildarUpplýsingagjöf um sjálfbærni

Fjárhagsleg áhætta sem tengist sjálfbærni er mismikil eftir fjárfestingarkostum og hefur mismikið vægi. Fjárhagsleg áhætta tengd sjálfbærni er hluti af mati á fjárfestingarkostum en kemur þó ekki í veg fyrir að Gildi fjárfesti þar sem áhætta vegna sjálfbærni er til staðar.
Nánar um sjálfbærni