Lánakjör
Ný lán eru veitt sem verðtryggð lán með föstum vöxtum. Fastir vextir fela í sér að vaxtaprósenta lánsins er sú sama allan lánstímann. Kjör einstakra lána má sjá hér:
Vaxtatafla sjóðfélagalána Gildis. Breytilegir verðtryggðir og óverðtryggðir vextir eru einungis vegna eldri útgefinna lána.
| Lánaflokkur | Grunnlán (allt að 60% veðhlutfall) | Viðbótarlán (60–70% veðhlutfall) |
|---|---|---|
| Verðtryggð lán — fastir vextir | 4,30% | 5,05% |
| Verðtryggð lán — breytilegir vextir (eldri lán) | 4,30% | 5,05% |
| Óverðtryggð lán — breytilegir vextir (eldri lán) | 9,25% | 10,00% |
*Breytilegir verðtryggðir og óverðtryggðir vextir eru einungis vegna eldri útgefinna lána.
Hagnýtar upplýsingar um:
Verðtryggð lán fela almennt í sér lægri greiðslubyrði en óverðtryggð en hægari eignamyndun. Til að byrja með eru afborganir töluvert lægri af verðtryggðum lánum en óverðtryggðum m.v. sömu lánsupphæð.
Greiðslubyrði lána með jöfnum afborgunum er meiri til að byrja með en við jafnar greiðslur. Með jöfnum afborgunum lækkar höfuðstóll láns alltaf um sömu fjárhæð í hverjum mánuði og eignamyndun verður því hraðari fyrst um sinn.
Verðtryggð lán með föstum vöxtum fela í sér fyrirsjáanlegar afborganir og jafnari greiðslubyrði en hægari eignamyndun samanborið við óverðtryggð lán.
Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum fela í sér hægari eignamyndun og lægri greiðslubyrði í samanburði við óverðtryggð lán. Á löngum lánstíma má telja víst að vextir hækki eða lækki og þar með breytist greiðslubyrðin. Afborganir lána með breytilegum vöxtum eru því ekki fyrirsjáanlegar út lánstímann.
Óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum fela í sér hærri afborganir og hraðari eignamyndun í samanburði við verðtryggð lán. Á löngum lánstíma má telja víst að vextir hækki eða lækki og þar með breytist greiðslubyrðin. Afborganir lána með breytilegum vöxtum eru því ekki fyrirsjáanlegar út lánstímann.
Vaxtaþróun
Kjör á lánum Gildis taka reglulega breytingum. Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um hvernig vextir á verðtryggðum og óverðtryggðum grunnlánum Gildis hafa tekið breytingum frá stofnun sjóðsins árið 2005. Það er stjórn Gildis sem tekur ákvörðun um breytingar á vaxtakjörum sjóðfélagalána.
Verðtryggð lán - fastir vextir
Verðtryggð lán - breytilegir vextir*
*Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum voru veitt til ársins 2025.
Óverðtryggð lán - breytilegir vextir*
*Vaxtaþróun óverðtryggðra lána Gildis 2015–2025 og vaxtaþróun eldri lána eftir að útlánum var hætt árið 2025.