Breyta láni
Lánabreytingar eru fyrir sjóðfélaga sem eru með lán hjá Gildi. Eftir útgáfu láns geta komið upp aðstæður sem kalla á breytingar, til dæmis vegna kaupa á nýju húsnæði eða tímabundnar breytingar á tekjum vegna fæðingarorlofs eða atvinnuleysis. Öllum breytingum á lánum þarf að þinglýsa og í sumum tilfellum þarf samþykki frá síðari veðhafa og ef til vill þarf nýtt greiðslumat.
Eftirtaldir möguleikar standa lántakendum til boða:*
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn um veðflutning:
- Beiðni um veðflutning.
- Lánanúmer áhvílandi láns/lána sem óskað er eftir að veðflytja.
- Veðbandayfirlit (sjóðurinn getur útvegað - gjald samkvæmt gjaldskrá).
- Fasteignamatsvottorð (sjóðurinn getur útvegað - gjald samkvæmt gjaldskrá).
- Samþykkt kauptilboð.
- Lenging lánstíma
- Breyting jafnra afborgana í jafnar greiðslur
- Endurfjármögnun - breyta um lánategund og/eða afborgunartegund og lengja lánstíma
- Frysting - greiðslufrestur í allt að 6 mánuði
- Bæta vanskilum við höfuðstól - hvert mál er metið fyrir sig og hafa þarf samband við sjóðinn
- Lán þarf að vera í skilum og lántaki má ekki eiga langa sögu um frystingu lána
- Tilgreina þarf ástæðu fyrir beiðni um greiðslufrest og æskilegt er að láta eftirfarandi gögn fylgja með eftir því sem við á: Staðfesting frá Vinnumálastofnun, læknisvottorð eða greiðsluyfirlit frá fæðingarorlofssjóði
- Ekki er veittur greiðslufrestur vegna framkvæmda
- Veðbandayfirlit og fasteignavottorð (sjóðurinn getur útvegað – gjald samkvæmt gjaldskrá)
- Kauptilboð/kaupsamningur (ef við á)
- Veðbandayfirlit og fasteignavottorð (sjóðurinn getur útvegað – gjald samkvæmt gjaldskrá sjóðsins)
- Afsal (ef við á)
- Afrit af veðskuldabréfi/bréfum sem óskað er eftir að lán Gildis þoki fyrir
- Staða áhvílandi láns sem greiða á upp (ef við á)
- Veðbandayfirlit og fasteignavottorð (sjóðurinn getur útvegað – gjald samkvæmt gjaldskrá)
*Vakin er athygli á að ekki er hægt að hækka lánsupphæð, breyta samsetningu óverðtryggðra/verðtryggðra lána eða breyta vaxtaformi lána með skilmálabreytingu. Ef lántaki vill breyta fyrrnefndum skilmálum lána, þarf að gera það í gegnum endurfjármögnun þar sem sótt er um nýtt lán með nýjum forsendum og eldra lánið greitt upp. Smelltu hér til að lesa þér til um endurfjármögnun.