Sjóðfélagayfirlit

Rafræn yfirlit, sem sýna meðal annars upplýsingar um iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga, eru birt tvisvar á ári á vefnum island.is og á „Mínum síðum“ Gildis.

Gildi sendir sjóðfélögum sínum slík sjóðfélagayfirlit annars vegar að vori og hins vegar á haustin með upplýsingum um iðgjaldagreiðslur. Það á að tryggja að sjóðfélagar fylgist með því að iðgjöld séu greidd af launum þeirra til lífeyrissjóðsins.

Frá byrjun árs 2023 hefur sjóðurinn haft þann hátt á að birta þessi sjóðfélagayfirlit rafrænt.