10. júlí 2026
Óverðtryggðir breytilegir vextir hækka 9. ágúst
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka breytilega óverðtryggða vexti eldri sjóðfélagalána* um 0,25% í samræmi við nýlega hækkun á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands. Breytingin tekur gildi sunnudaginn 9. ágúst næstkomandi. Aðrir vextir sjóðsins haldast óbreyttir að þessu sinni.
Eftir breytinguna verður vaxtatafla sjóðsins eftirfarandi:
| Grunnlán (allt að 60% veðhlutfall) | Viðbótarlán (60-70% veðhlutfall) | |
|---|---|---|
| Óverðtryggt – breytilegir vextir | 9,25% | 10,00% |
| Verðtryggt – breytilegir vextir | 4,30% | 5,05% |
| Verðtryggt – fastir vextir | 4,30% | 5,05% |
*Breytingin tekur aðeins til eldri sjóðfélagalána þar sem sjóðurinn veitir ekki lán með breytilegum vöxtum í kjölfar dóms Hæstaréttar sem féll á síðasta ári um skilmála í lánum Íslandsbanka.